Sara: Þær vældu út í eitt

Sara Björk í baráttunni í kvöld. Hún lét Íra aldeilis …
Sara Björk í baráttunni í kvöld. Hún lét Íra aldeilis finna fyrir sér í 90 mínútur. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Einn besti leikmaður íslenska liðsins í kvöld, hin bráðefnilega Sara Björk Gunnarsdóttir, var með þá vissu allan tímann að Ísland myndi hafa þetta af þar sem leikmenn Írlands eyddu orku sinni í að kvarta yfir aðstæðum.

„Þær voru vælandi um allt og út í allt en við aftur á móti tókum allar þá meðvituðu ákvörðun að láta aðstæðurnar ekki fara í taugarnar á okkur. Það viðhorf skipti sköpum í leiknum vil ég meina og ég fékk fljótt á tilfinninguna að úrslitin færu okkar veg sem þau líka gerðu og ég gæti ekki verið stoltari en ég er núna.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert