Eiður Smári spænskur meistari

Eiður Smári Guðjohnsen er spænskur meistari með félögum sínum í Barcelona. stækka

Eiður Smári Guðjohnsen er spænskur meistari með félögum sínum í Barcelona. AP

Barcelona, lið Eiðs Smára Guðjohnsens, varð í kvöld spænskur meistari í knattspyrnu þegar Real Madrid tapaði 2:3 fyrir Villarreal á útivelli. Real Madrid varð að sigra í leiknum til að eiga von á að halda meistaratitlinum.

Barcelona varð á miðvikudag bikarmeistari en þetta er í fyrsta skipti síðan 1998 sem liðið hampar báðum titlunum sama árið. Barcelona getur einnig unnið Meistaradeild Evrópu ef liðið sigrar Manchester United í úrslitaleik í Róm 27. maí. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is