Pepe biðst afsökunar

Pepe í baráttu við Lionel Messi í leiknum í gær. stækka

Pepe í baráttu við Lionel Messi í leiknum í gær. Reuters

Pepe, portúgalski varnarmaðurinn í liði Real Madrid, hefur beðist afsökunar fyrir að hafa stigið ofan á hönd Lionel Messi þegar Real Madrid og Barcelona áttust við í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöld.

,,Þetta var óviljandi og ef Messi er eitthvað móðgaður þá biðst ég afsökunar,“ segir Pepe á vef Real Madrid en Portúgalinn hefur oftar en ekki misst stjórn á skapi sínu og hefur oft brotið fólskulega af sér.

,,Ég legg sálina og líkamann í leikina og það hefur aldrei hvarflað að mér að reyna að meiða andstæðinginn,“ segir Pepe.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Föstudaginn 17. febrúar

Fimmtudaginn 16. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar


finnur.is