Messi kominn með 42 mörk

Lionel Messi.
Lionel Messi. AFP

Lionel Messi skoraði í 18. deildarleiknum í röð þegar Barcelona sigraði Rayo Vallecano, 3:1, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

David Villa skoraði fyrsta markið eftir sendingu frá Messi og argentínski snillingurinn skoraði síðan tvö mörk, sitt í hvorum hálfleik áður en gestirnir minnkuðu muninn.

Messi hefur þar með skorað 42 mörk í deildinni og lang markahæstur en með sigrinum í kvöld endurheimtu Börsungar 13 stiga forskot á toppi deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert