Jafntefli hjá Elmari og félögum

Theódór Elmar Bjarnason.
Theódór Elmar Bjarnason. Ljósmynd/randers.dk

Theódór Elmar Bjarnason og félagar hans í Randers gerðu í dag 2:2 jafntefli við Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Theódór lék allan tímann fyrir Randers sem er í áttunda sæti af 12 liðum í deildinni.

Ari Freyr Skúlason lék fyrri hálfleikinn með OB sem tapaði á heimavelli fyrir Nordsjælland. OB lék manni færri síðustu 40 mínútur leiksins. Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leikmannahópi Nordsjælland. OB er í sjöunda sætinu en Nordsjælland er í því sjötta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert