Stefnir í fyrsta titlalausa tímabilið í sex ár

Lionel Messi gengur niðurlútur af velli í kvöld eftir tapið …
Lionel Messi gengur niðurlútur af velli í kvöld eftir tapið á móti Real Madrid. AFP

Það stefnir allt í fyrsta titlalausa tímabilið hjá Barcelona í sex ár eftir að liðið tapaði fyrir erkifjendum sínum í Real Madrid í úrslitaleik spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.

Barcelona var slegið út af Atlético Madrid í Meistaradeildinni í síðustu viku og um síðustu helgi tapaði liðið fyrir Granada í deildinni og eru Börsungar í þriðja sæti á eftir Madridarliðinum, Real Madrid og Atlético Madrid.

Tapið í kvöld var það þriðja í röð hjá Katalóníuliðinu og það þykir tíðindum sæta þegar Barcelona tapar þremur fótboltaleikjum í röð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert