Atlético Madrid náði í kvöld sex stiga forskoti á toppi spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu þegar liðið lagði Elche að velli, 2:0.
Miranda skoraði fyrra mark Madridarliðsins á 70. mínútu og hinn marksækni Diego Costa bætti við öðru marki undir lokin úr vítaspyrnu en fyrr í leiknum hafði David Villa klúðrað vítaspyrnu fyrir liðið.
Atlético Madrid er með 85 stig í efsta sætinu, Real Madrid er með 79 og Barcelona 78 en tvö síðastnefndu liðin eiga leik til góða.