FIFA afléttir banninu af Barcelona

Útlit er fyrir að Barcelona geti náð sér í liðsstyrk …
Útlit er fyrir að Barcelona geti náð sér í liðsstyrk í sumar. AFP

Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti í dag að spænska meistaraliðið Barcelona gæti keypt leikmenn á komandi sumri og aflétti til bráðabirgða banninu sem félagið var úrskurðað í fyrr í þessum mánuði.

Það er með fyrirvara um áfrýjun en Barcelona hafði staðfest þá ákvörðun sína að áfrýja úrskurðinum. Samkvæmt honum var Barcelona  bannað að kaupa leikmenn í næstu tveimur félagaskiptagluggum, í sumar og í janúar 2015, en FIFA taldi að félagið hefði brotið reglur um félagaskipti ungra erlendra leikmanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert