Real Madrid og Atletíco Madrid skildu jöfn, 1:1, í fyrri leik liðana í spænska ofurbikarnum í knattspyrnu en þar mætast meistararnir og bikarmeistararnir frá síðustu leiktíð.
Það stefndi í sigur Real Madrid þegar James Rodríguez kom liðinu í 1:0 á 81. mínútu en Kólumbíumaðurinn sem varð markakóngur á HM sumar leysti Cristiano Ronaldo af hólmi í hálfleik. Það var síðan Raul Garcia sem jafnaði metin fyrir meistara Atletíco á 88. mínútu og þar við sat.
Liðin eigast við á heimavelli Atletico Madrið í næstu viku.