Howard tekur sér frí frá landsliðinu

Tim Howard.
Tim Howard. AFP

Tim Howard markvörður Everton tilkynnti í kvöld að hann hafi ákveðið að taka sér eins árs leyfi frá bandaríska landsliðinu.

Howard, sem er 35 ára gamall, var magnaður á HM í sumar. Hann á að baki 104 leiki með bandaríska landsliðinu og hefur leikið hverja einustu mínútu með liðinu í undanförnum tveimur heimsmeistarakeppnum.

Howard vill eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni og segist landsliðsþjálfarinn Jürgen Klinsmann hafa skilning á ákvörðun Howards.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert