Hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder, sem átti dapran dag með Hollendingum í ósigrinum gegn Íslendingum á Laugardalsvellinum í síðustu viku, gat brosað á ný í gærkvöld eftir að hafa tryggt sínum mönnum í Galatasaray sigurinn gegn Fenerbahce í tyrknesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Sneijder skoraði tvö glæsileg mörk með langskotum á síðustu tveimur mínútum leiksins og tryggði sínum mönnum sigur, 2:1, og toppsætið í deildinni.