Napoli meistari meistaranna

Gonzalo Higuain fagnar marki í kvöld.
Gonzalo Higuain fagnar marki í kvöld. AFP

Napoli er meistari meistaranna á Ítalíu en liðið hrósaði í kvöld sigri gegn Juventus þegar liðin áttust við í árlegum leik meistarar meistaranna.

Leikurinn var spilaður í Doha í Katar þar sem úrslitin réðust í bráðabana í vítakeppni. Staðan eftir venjulegan leiktíma var, 1:1, og 2:2 eftir framlengingu þar sem Argentínumenn skoruðu öll mörkin. Carlos Tévez skoraði bæði mörk Juventus en Gonzalo Higuain bæði mörk Napoli.

Í vítakeppninni hafði Napoli betur, 6:5, en sjö vítaspyrnur fóru í súginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert