Dýrmætur sigur hjá Birki

Birkir Bjarnason í landsleik.
Birkir Bjarnason í landsleik. AFP

Birkir Bjarnason og samherjar hans í Pescara héldu upp á jólin með því að vinna afar dýrmætan heimasigur á Varese, 2:0, í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu í dag, aðfangadag.

Birkir lék allan leikinn á miðjunni hjá Pescara sem var aðeins þremur stigum fyrir ofan Varese, og fallsæti, fyrir leikinn. Nú er lið hans hinsvegar í 13. sæti af 22 liðum, aðeins fjórum stigum frá því að komast í umspilssæti fyrir A-deildina en jafnframt aðeins fjórum stigum frá því að lenda í umspilssæti um áframhaldandi veru í hnífjafnri B-deildinni.

Birkir fær ekkert jólafrí því Pescara spilar aftur á sunnudaginn og þá á útivelli gegn Livorno, sem er í þriðja sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert