Torres færist nær Atlético Madrid

Fernando Torres í leik með AC Milan.
Fernando Torres í leik með AC Milan. AFP

AC Milan hefur staðfest að það sé í viðræðum við Atlético Madrid um að skipta á Fernando Torres og Alessio Cerc.

Chelsea lánaði Fernando Torres í sumar til AC Milan í tvö tímabil en framherjinn hefur náð að finna taktinn með ítalska liðinu. Sjónvarp AC Milan-liðsins greindi frá því að nú væri félagið í viðræðum við Spánarmeistarana um skipti á leikmönnunum en Torres hóf sinn feril hjá Atlético Madrid og átti þar góðu gengi að fagna áður en hann var seldur til Liverpool árið 2007.

Torres hefur skorað eitt mark í 10 deildarleikjum með AC Milan á leiktíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert