Real Madrid tók daginn snemma og nældi í þrjú stig í toppbaráttunni á Spáni með 3:0 útisigri á Getafe.
Cristiano Ronaldo skoraði tvívegis og Gareth Bale eitt en James Rodríguez lagði upp tvö mörk. Real er með fjögurra stiga forskot á Barcelona á toppi deildarinnar.