Emil Hallfreðsson skilaði góðu dagsverki með liði Hellas Verona í dag en eins og fram kom á mbl.is fyrr í dag lagði hann upp bæði mörk sinna manna í sigrinum gegn Cagliari.
Tvær frábærar sendingar frá Emil inn á vítateiginn skiluðu mörkum eins og sjá á myndskeiðunum hér að neðan.