Elías Már byrjaði í tapi Vålerenga

Elías Már Ómarsson á síðasta tímabili með Keflavík.
Elías Már Ómarsson á síðasta tímabili með Keflavík. Ljósmynd/Víkurfréttir

Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson var í annað skipti í byrjunarliði Óslóarfélagsins Vålerenga á tímabilinu í 2. umferð norska bikarsins en liðið beið lægri hlut gegn Gjövik-Lyn, 1:0, sem leikur í þriðju efstu deild norska fótboltans.

Elías Már var tekinn af leikvelli í hálfleik, í stöðunni 0:0, en sigurmark leiksins kom á 61. mínútu. Hann hefur byrjað inná í báðum bikarleikjum Vålerenga á tímabilinu en ekki fengið tækifæri í úrvalsdeildinni með liðinu.

Heldur betur óvænt úrslit en sætur sigur hjá Gjövik-Lyn og það er mikið um óvænt úrslit í bikarnum í Noregi í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert