„Vinnur ekki með tíu mönnum“

Bale ásamt Cristiano Ronaldo í leiknum gegn Juventus í gær.
Bale ásamt Cristiano Ronaldo í leiknum gegn Juventus í gær. AFP

Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, lét Walesverjann Gareth Bale svo sannarlega heyra það eftir tap Real Madrid gegn Juventus þegar liðin áttust við í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

„Þú getur ekki unnið leik sem þennan með 10 mönnum. Garath Bale færði Real Madrid ekki neitt og hann tók auðveldar ákvarðanir í hvert sinn. Ástæðan fyrir því að hann er í Real Madrid er hann getur verið hugrakkur með með boltann en hann tók ekki manninn á í eitt skipti og samherjar hans er ekki ánægðir með hann,“ sagði Keane, sem tekur að sér að vera sparkspekingur í sjónvarpinu.

Juventus hafði betur í leiknum, 2:1, en liðin mætast að nýju í Madrid í næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert