Fékk rautt fyrir að skalla Morata í andlitið (myndskeið)

Alvaro Morata og Miguel Britos eigast hér við í leiknum.
Alvaro Morata og Miguel Britos eigast hér við í leiknum. AFP

Miguel Britos, leikmaður Napoli á Ítalíu, gekk af göflunum í dag er hann skallaði Alvaro Morata, framherja Juventus, í andlitið.

Juventus sigraði Napoli 3:1 á Juventus leikvanginum í dag, en á 90. mínútu átti sér stað viðbjóðslegt atvik.

Miguel Britos, leikmaður Napoli, gekk þá upp að spænska framherjanum, Alvaro Morata, og skallaði hann í andlitið. Britos fékk að líta beint rautt spjald, en hægt er að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert