Elmar lagði upp mark í sigri Randers

Theodór Elmar Bjarnason í leik með Randers.
Theodór Elmar Bjarnason í leik með Randers. Ljósmynd/randersfc.dk

Theodór Elmar Bjarnason, leikmaður Randers í Danmörku, var öflugur í 2:0 sigri liðsins á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Dijby Fall kom gestunum í Randers yfir á 14. mínútu leiksins áður en Jonas Kamper bætti við öðru á 62. mínútu. Elmar átti stoðsendinguna að markinu, en þetta var fjórða stoðsending hans á þessari leiktíð.

Randers er í 4. sæti deildarinnar með 48 stig þegar tveir leikir eru eftir, þremur stigum á eftir Bröndby sem á leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert