Skoraði stórbrotið mark gegn Gunnari Heiðari (myndskeið)

Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Ljósmynd/Häcken

Stefan Rodevåg, leikmaður Falkenbergs FF í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, mun seint gleyma markinu sem hann skoraði gegn Häcken í dag.

Falkenbergs sigraði Häcken 2:0 í sænsku deildinni í dag, en Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan leikinn í liði Häcken.

Fyrra mark leiksins er klárlega eitt af mörkum tímabilsins í Svíþjóð, en það gerði Stefan Rodevåg er hann þrumaði knettinum upp í samskeytin eftir langa sendingu frá vinstri. Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert