Berbatov farinn frá Mónakó - á leið til Englands?

Dimitar Berbatov í leik með Mónakó.
Dimitar Berbatov í leik með Mónakó. AFP

Búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov hefur yfirgefið en það kom fram á heimasíðu félagsins í dag.

Berbatov skoraði 13 mörk í 38 leikjum fyrir Mónakó en hann gerði garðinn frægan með Manchester United, Tottenham og Fulham í ensku úrvalsdeildinni en gekk í raðir félagsins frá Fulham fyrir einu og hálfu ári síðan.

Berbatov er sagður vera á óskalista nýliða Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert