Markaskorarinn missti fjölskylduvin

Derlis Gonzalez fagnar marki sínu gegn Brasilíumönnum.
Derlis Gonzalez fagnar marki sínu gegn Brasilíumönnum. AFP

Derlis Gonzalez, sem skoraði úr tveimur vítaspyrnum þegar Paragvæjar slógu Brasilíumenn út í S-Ameríkukeppninni í knattspyrnu, mátti sjá á eftir miklum fjölskylduvini yfir móðuna miklu þegar hann fagnaði sigri Paragvæa.

Hinn 44 ára gamli Irrazabal Manuel, sem Gonzalez kallaði frænda sinn, lést úr hjartaslagi þegar hann fagnaði sigri Paragvæa heima fyrir. „Af hverju í dag, frændi? Þú yfirgafst mig eftir hjartaáfall því ég gaf þér svo mikla hamingju og gleði. Ég trúi þessu ekki,“ skrifaði Gonzalez á twitter-síðu sína. Gonzalez jafnaði metin fyrir Paragvæja úr vítaspyrnu og þeir höfðu síðan betur í vítaspyrnukeppni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert