Pogba á leið til Barcelona

Paul Pogba.
Paul Pogba. AFP

Franski landsliðsmaðurinn Paul Pogba er á leið frá Ítalíumeisturum Juventus til Evrópu- og Spánarmeistara Barcelona.

Félagaskiptin munu þó ekki sér stað fyrr en á næsta ári þegar banni verður aflétt af Barcelona að mega kaupa leikmenn.

Fram kemur í ítalska blaðinu Gazzetta dello Sport að Juventus og Barcelona hafi komist að samkomulagi um félagaskiptin. Börsungar muni greiða 57 milljónir punda fyrir leikmanninn en sú upphæð getur svo hækkað upp í 64 milljónir við tiltekinn fjölda leikja með liðinu.

Manchester City og Chelsea hafa verið á höttunum eftir Pogba sem var á mála hjá Manchester United áður hann fór til Juventus árið 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert