Úrslit Meistaradeildarinnar í Wales

Millennium Stadium í Cardiff.
Millennium Stadium í Cardiff.

UEFA tilkynnti í dag að úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu árið 2017 muni fara fram á Millennium Stadium leikvanginum í Cardiff.

Völlurinn, sem er í eigu velska ruðningssambandsins, er heimavöllur velska landsliðsins í ruðning og knattspyrnu. Úrslitaleikir enska FA bikarsins og deildabikarsins fóru einnig fram á milli ársins 2001 til ársins 2007 þegar Wembley Stadium, heimavöllur enska knattspyrnusambandsins, var enn í framkvæmd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert