„Við toppum á hárréttum tíma“

Hope Solo markvörður Bandaríkjanna.
Hope Solo markvörður Bandaríkjanna. AFP

Hope Solo, markvörður bandaríska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, er bjartsýn fyrir leik liðsins gegn Þýskalandi í undanúrslitum HM kvenna í Kanada.

„Þær munu annað hvort mæta okkur af miklum krafi eða vera þreyttar. Við erum að toppa á hárréttum tíma,“ sagði Solo. Þýskaland og Bandaríkin hafa bæði orðið heimsmeistari tvisvar sinnum en Þjóðverjar hafa unnið 2 heimsmeistaramót af síðustu 3.

„Þýskaland er frábært lið. Þær eru skipulagðar en við erum upp á okkar besta og munum vonandi sigra Þýskaland og komast í úrslitin,“ bætti Hope Solo við að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert