Fyrirliði Inter framlengdi til 2019

Andrea Ranocchia í baráttunni við Alessandro Matri.
Andrea Ranocchia í baráttunni við Alessandro Matri. AFP

Andrea Ranocchia, fyrirliði Internazionale á Ítalíu, framlengdi samning sinn við félagið í dag til næstu fjögurra ára, en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Ranocchia, sem er 27 ára gamall miðvörður, kom til félagsins frá Genoa árið 2011, en síðan þá hefur hann spilað 156 leiki og gert 9 mörk fyrir liðið.

Hann tók við fyrirliðabandi Inter fyrir síðustu leiktíð eftir að Javier Zanetti lagði skóna á hilluna og gerðist varaforseti félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert