Niðurbrotin eftir sjálfsmarkið (myndskeið)

Mark Sampson þjálfari enska landsliðsins og Jo Potter hughreysta Laura …
Mark Sampson þjálfari enska landsliðsins og Jo Potter hughreysta Laura Bassett. AFP

Laura Bassett varnarmaður enska landsliðsins í knattspyrnu var gjörsamlega niðurbrotin þegar flautað var til leiksloka í undanúrslitaleik Englands og Japans á HM kvenna í knattspyrnu í nótt að íslenskum tíma.

Bassett varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í uppbótartíma og þetta mark tryggði heimsmeisturunum Japans farseðilinn í úrslitaleikinn á móti Bandaríkjunum.

Bassett grét eftir leikinn og samherjar hennar gerðu í því að faðma hana og hughreysta sem og þjálfari enska landsliðsins eins og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert