Öðru tilboði hafnað í Jón Daða

Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Norska úrvalsdeildarliðið Viking hafnaði öðru tilboði frá þýska B-deildarliðinu Kaiserslautern í íslenska landsliðsmanninn Jón Daða Böðvarsson og þar með er nokkuð ljóst að Selfyssingurinn leikur með norsku Víkingunum út tímabilið.

Fyrsta tilboð þýska liðsins var á bilinu 35-50 milljónir króna sem var hafnað og nú hefur öðru tilboði félagsins verið hafnað að því er fram kemur í norska blaðinu Stavanger Aftenblad í dag.

Jón Daði á hálft ár eftir af samningi sínum við Viking.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert