Hallgrímur og Ari Freyr töpuðu

Ari Freyr Skúlason og félagar hans í OB töpuðu sínum …
Ari Freyr Skúlason og félagar hans í OB töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu í dag. mbl.is / Eggert Jóhannesson

Hallgrímur Jónasson og Ari Freyr Skúlason léku báðir allan leikinn með OB þegar liðið tapaði fyrir Midtjylland með einu marki gegn engu á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti tapleikur OB á tímabilinu, en liðið hafði sigrað fyrstu tvo leiki sína í deildinni. 

Midtjylland er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Eyjólfur Héðinsson er enn á meiðslalistanum hjá Midtjylland, en hann hefur glímt við þrálát meiðsli undanfarin misseri.

Hallgrímur fékk gult spjald um miðjan fyrri hálfleikinn. Sigur Midtjylland var dramatískur en sigurmarkið koma á lokaandartökum leiksins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert