Bale sökkti sínum gömlu félögum

Gareth Bale er fagnað eftir markið í dag.
Gareth Bale er fagnað eftir markið í dag. AFP

Real Madrid hafði betur gegn Tottenham þegar liðin mættust í Audi-bikarnum, alþjóðlegu æfingamóti sem fram fer á heimavelli Bayern München í Þýskalandi.

James Rodríguez kom Madrídingum yfir í fyrri hálfleik áður en Gareth Bale innsiglaði sigurinn í þeim síðari með marki gegn sínum gömlu félögum í Tottenham. Bæði lið stilltu upp sterku liði, en Cristiano Ronaldo var þó ekki með Real Madrid í leiknum.

Real spilar við AC Milan eða fyrrnefnda Bæjara í úrslitum, en þau mætast í hinum undanúrslitaleiknum í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert