Birkir: Þeir búast við sigri

Birkir Bjarnason segir að jafntefli á móti Hollendingum í undankeppni EM í Amsterdam á fimmtudagskvöldið yrðu frábær úrslit fyrir Íslendinga.

„Hollendingarnir eru með gríðarlega pressu á sér. Þeir eru komnir með nýjan þjálfara og eru fimm stigum á eftir okkur. Þeir búast við sigri en eitt stig fyrir okkur út úr þessum leik yrðu frábær úrslit,“ sagði Birkir Bjarnason við mbl.is í dag eftir fyrstu æfingu landsliðsins í Amsterdam í dag en allt viðtalið við Birki má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert