Við hættum með Leikni

„Það er ákveðið að við þjálfararnir stígum til hliðar og hættum með liðið,“ sagði Freyr Alexandersson annar þjálfara Leiknis eftir 2:3 tap liðsins í dag fyrir Keflavík í uppgjöri fallliðanna úr Pepsi deild karla í knattspyrnu.

„Ég er ekki feginn að þetta er búið. Ég vildi að það væri upphaf maímánaðar núna því þá er ég sannfærður um að sex mánuðum síðar værum við ekki í þeirri stöðu sem við erum í núna. Við héldum að við gætum lært og samt verið nógu góðir til að halda okkur uppi. Það reyndist ekki rétt, en við erum búnir að læra alveg rosalega mikið í sumar,“ sagði Freyr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert