„Ég hef trú á Barkley“

Ross Barkley í leiknum í kvöld.
Ross Barkley í leiknum í kvöld. AFP

Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, hefur tröllatrú á Ross Barkley, leikmanni Everton, en hann var frábær í 2:0 sigri liðsins á Eistlandi í kvöld.

Barkley lagði upp fyrra mark enska liðsins í kvöld en hann var afar hreyfanlegur í leiknum og óhætt að segja að hann hafi verið besti maðurinn á vellinum.

Hodgson var afar ánægður með Barkley en með sigrinum er England með níu sigra af níu mögulegum í riðlinum.

„Ross var ekki sá eini sem átti skilið nafnbótina sem besti leikmaður vallarins en ég var ánægður með að hann fékk hana,“ sagði Hodgson.

„Hann sýndi í raun og veru hvað hann getur í fótbolta,“ sagði hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert