Skelfileg dýfa hjá Robben - myndskeið

Arjen Robben.
Arjen Robben. AFP

Hollendingurinn Arjen Robben hjá Bayern München gerði sig sekan um skelfilega dýfu í 0:0 jafntefli liðsins gegn Frankfurt í efstu deild þýska fótboltans í gær.

Robben er allur að komast í gang eftir að hafa misst af fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla og lék allan leikinn fyrir Bayern en á 85. mínútu reyndi hann að fiska víti en uppskar ekkert annað en réttileg gult spjald fyrir leikaraskap sem sjá má hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert