Alfreð á bekknum gegn Bayern

Alfreð Finnbogason í búningi Olympiakos.
Alfreð Finnbogason í búningi Olympiakos. AFP

Alfreð Finnbogason er á meðal varamanna gríska liðsins Olympiacos sem mætir Þýskalandsmeisturum Bayern München á útivelli í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu, en flautað er til leiks klukkan 19.45.

Alfreð og félagar geta tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum takist þeim að krækja í stig, en það fer einnig eftir úrslitum Dinamo Zagreb og Arsenal í hinum leik riðilsins.

Tveir af átta leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni hófust klukkan 17, en flautað er til leiks í hinum sex klukkan 19.45 og er fylgst með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is. Hana má opna HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert