Snyrtilegt mark hjá Suárez - myndskeið

Luis Suárez fagnar marki gegn Roma í kvöld.
Luis Suárez fagnar marki gegn Roma í kvöld. AFP

Barcelona komst í 3:0 gegn Roma í lok fyrri hálfleiks í viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu sem nú stendur yfir á Camp Nou í Barcelona.

Luis Suárez skoraði markið með fallegu, viðstöðulausu skoti en þetta er annað mark hans í leiknum. Lionel Messi skoraði mark númer tvö.

Nú hefur þrenningin magnaða hjá Barcelona, Messi, Suárez og Neymar, skorað samtals 160 mörk frá byrjun tímabilsins 2014-2015. Hreint ótrúleg tölfræði.

En hér er markið, 3:0, í meðfylgjandi Twitterfærslu:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert