Hefur alltaf hrifist af Fellaini

Varaforseti AC Milan er hrifinn af Fellaini en ætlar samt …
Varaforseti AC Milan er hrifinn af Fellaini en ætlar samt ekki að fá hann til Ítalíu. AFP

Adriano Galliani, varaforseti ítalska knattspyrnufélagsins AC Milan, segir ekkert hæft í orðrómi þess efnis að Milan ætli að klófesta Mar­oua­ne Fellaini, leikmann Manchester United, í janúarglugganum.

Galliani viðurkennir þó að hann sé hrifinn af Fellaini og knattspyrnustjóri Milan, Sinsa Mihajlovic, er mikill aðdáandi Belgans stóra.

„Fellaini er leikmaður sem ég hef alltaf hrifist af. Það er hins vegar ekki möguleiki að hann sé leið til Milan. Ég get neitað því með fullri vissu að hann sé á leiðinni, enda erum við með sjö leikmenn sem leika á miðsvæðinu,“ sagði Galliani.

„Ef enginn miðvallarleikmaður yfirgefur okkur í janúar sjáum við enga ástæðu til að bæta við okkur leikmanni í þá stöðu. Það á reyndar við um allar stöður; það er ólíklegt að við fáum nýja leikmenn nema einhverjir fari frá okkur,“ bætti Galliani.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert