Neymar er ekki Júdas

Stoichkov hefur ekki trú á því að Neymar fari til …
Stoichkov hefur ekki trú á því að Neymar fari til Madridar. AFP

Fyrrverandi leikmaður Barcelona, Hristo Stoichkov, telur að Brasilíumaðurinn Neymar muni ekki feta í fótspor Luis Figo. Þau fótspor eru ekki vinsæl hjá stuðningsmönnum Barcelona en Figo yfirgaf Börsunga og gekk til liðs við Real Madrid.

Stoichkov trúir því ekki að Neymar „verði annar Júdas“ og gangi til liðs við erkifjendurna í höfuðborginni. Neymar er samningsbundinn Barcelona til 2018 en hefur verið orðaður við hin ýmsu lið síðustu misserin.

„Ég held að Neymar vinni Ballon d'Or (Gullboltann), sem leikmaður Barcelona. Hann verður ekki annar Júdas. Hann er klókur strákur og veit að þarna á hann heima, þetta er liðið hans,“ sagði Stoichkov.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert