Messi valinn sá besti í fyrsta sinn

Lionel Messi.
Lionel Messi. AFP

Svo einkennilega sem það kann að hljóma var Lionel Messi valinn leikmaður mánaðarins í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í fyrsta skipti í dag.

Messi er leikmaður janúarmánaðar en Argentínumaðurinn skoraði sex mörk í fimm leikjum með Katalóníuliðinu.

Þessi viðurkenning hefur verið veitt síðan í september 2013 og hefur Messi aldrei orðið fyrir valinu en 17 leikmenn hafa orðið fyrir valinu þar á meðal Cristiano Ronaldo og Diego Godin sem tvívegis hafa verið valdir leikmenn mánaðarins.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert