Góður sigur hjá Diego

Diego Jóhannesson er hann var valinn leikmaður mánaðarins í nóvember.
Diego Jóhannesson er hann var valinn leikmaður mánaðarins í nóvember. Ljósmynd/realoviedo.es

Real Oviedo vann Tenerife 1:0 í spænsku B-deildinni í knattspyrnu í dag en Diego Jóhannesson lék allan leikinn fyrir heimamenn.

Oviedo hefur komið öllum á óvart á þessari leiktíð en liðið kom upp úr C-deildinni fyrir þessa leiktíð og því ekki búist við miklu frá liðinu.

Nú situr það í 3. sæti deildarinnar með 42 stig þegar 25 umferðir eru búnar en Diego hefur verið lykilmaður í liðinu.

Frammistaða hans með Oviedo skilaði honum sæti í íslenska landsliðshópnum sem fór til Bandaríkjanna á dögunum en þar lék hann sinn fyrsta landsleik. Hann lék auðvitað allan leikinn í sigri Oviedo í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert