Auðvitað eru þetta mikil vonbrigði

Hummels vill ganga til liðs við Bayern München.
Hummels vill ganga til liðs við Bayern München. AFP

Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri þýska liðsins Dortmund, er gríðarlega vonsvikinn vegna þess að varnarmaðurinn Mats Hummels vill ganga til liðs við Bayern München.

Dortmund á ennþá möguleika á því að verða þýskur meistari í knattspyrnu en vonin er veik. Bayern er sjö stigum á undan Dortmund og tryggir sér titilinn takist liðinu að sigra Borussia Moenchengla­dbach á morgun. Dortmund og Bayern mætast síðan í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar 21. maí.

„Við fréttum af þessu í gær. Mats (Hummels) sagði okkur frá ákvörðun sinni í gær og ég er ánægður að staðan er skýr. Við getum þá unnið út frá því,“ sagði Tuchel en Bayern á eftir að gera Dortmund tilboð í Hummels.

„Við myndum missa gæðaleikmann og ákvörðunin eru okkur auðvitað mikil vonbrigði,“ bætti Tuchel við en Hummels gekk til liðs við Dortmund frá Bayern München árið 2008 og snýr því aftur á heimaslóðir fái hann vilja sínum framgengt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert