„Gefið boltann á mig og við vinnum“

Mario Balotelli.
Mario Balotelli. AFP

Fyrrverandi sóknarmaður Liverpool og núverandi leikmaður Sunderland, Fabio Borini, segir að Mario Balotelli sé besti leikmaður sem hann hefur leikið með.

Hvorki Balotelli né Borini náðu sér á strik hjá Liverpool og yfirgáfu félagið síðastliðið sumar. Borini var seldur til Sunderland og Balotelli lánaður til AC Milan.

Borini var fljótur til svars þegar hann var spurður hver væri besti leikmaður sem hann hefði leikið með af ítölskum fjölmiðlum. „Balotelli, það er engin spurning. Ég hitti hann í U-21 árs landsliðinu þegar hann lék með Inter,“ sagði Borini og útskýrði dæmið betur með sögu af Balotelli:

„Við vorum tveimur mörkum undir í leik með U-21 árs liðinu og þá sagði Balotelli: „Gefið boltann á mig og við vinnum.“ Hann fékk boltann þrisvar sinnum og skoraði þrjú mörk!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert