Hólmfríður og Þórunn í toppbaráttu

Hólmfríður Magnúsdóttir í leik með íslenska landsliðinu gegn Hvíta-Rússlandi í …
Hólmfríður Magnúsdóttir í leik með íslenska landsliðinu gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni EM 2017. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Avaldsnes með Hólmfríði Magnúsdóttur og Þórunni Helgu Jónsdóttur innanborðs lagði Trondheims-Örn að velli, 2:0, í fimmtu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. 

Þórunn Helga Jónsdóttir lék allan leikinn með Avaldsnes, en Hólmfríður Magnúsdóttir var í byrjunarliði liðsins og var tekin af velli undir lok leiksins. 

Avaldsnes skaust upp í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri, en liðið er með jafn mörg stig og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og félagar hennar hjá Stabæk sem er sæti ofar vegna hagstæðari markatölu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert