Fagnaði sigri erkifjendanna

Leikmenn Real Madrid fagna sigri sínum í Meistaradeild Evrópu á …
Leikmenn Real Madrid fagna sigri sínum í Meistaradeild Evrópu á laugardaginn. AFP

Sara Ezquerro, markvörður kvennaliðs Atlético Madrid, var gripin glóðvolg við að fagna sigri erkifjenda liðsins, Real Madrid, í Meistaradeild Evrópu á laugardaginn.

Myndir náðust af Ezquerro fagna sigri Real Madrid á götum Madridarborgar. Myndirnar hafa fengið síður en svo góðan hljómgrunn hjá stuðningsmönnum Altético Madrid eins og gefur að skilja. 

Samkvæmt heimildum Marca hefur félagið kallað Ezquerro til fundar til þess að ræða atvikið og talið er að niðurstaða fundarins geti orðið sú að hún verði rekin úr félaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert