Matthías með tvö mörk í stórsigri

Matthías Vilhjálmsson.
Matthías Vilhjálmsson. Ljósmynd/rbk.no

Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Rosenborg í Noregi, gerði tvö mörk fyrir liðið er það vann Haugesund 6:0 í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Matthías og Guðmundur Þórarinsson voru báðir í byrjunarliði Rosenborg í dag en Hólmar Örn Eyjólfsson sat allan tímann á varamannabekknum.

Norska stórliðið lék sér að Haugesund í dag en Matthías komst tvisvar á blað. Hann skoraði á 52. og 59. mínútu.

Rosenborg er áfram í efsta sæti deildarinnar með 40 stig eftir 17 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert