Giggs með skemmtilega takta – myndskeið

Ryan Giggs hefur engu gleymt.
Ryan Giggs hefur engu gleymt. AFP

Ryan Giggs, fyrrum leikmaður Manchester United á Englandi, var með skemmtilega takta í Futsal-móti á Indlandi á dögunum en greinilegt er að hann hefur engu gleymt.

Giggs, sem er einn sigursælasti knattspyrnumaður í sögu Bretlandseyja, lagði skóna á hilluna árið 2014 eftir að hafa leikið með Manchester United allan ferilinn.

Hann gerðist aðstoðarþjálfari liðsins í kjölfarið en hann lét af störfum eftir síðasta tímabil í kjölfar þess að José Mourinho tók við liðinu.

Hann var mættur til Indlands í þessum mánuði til þess að spila á Futsal-móti en þar sýndi hann skemmtilega takta eins og sjá má hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert