Aron Jóhannsson er í byrjunarliði Werder Bremer sem mætir Þýskalandsmeisturum Bayern München í efstu deild þýska fótboltans í kvöld.
Um fyrstu umferðina í þýsku deildinni er að ræða og hefur Aron leik í fremstu víglínu.
Aron missti af stórum hluta síðasta tímabils vegna meiðsla sem hann hefur nú náð að hrista af sér.
Werder Bremen lenti í 10. sæti þýsku Bundesligunnar í fyrra.