Neymar með tvö í stórsigri

Neymar fagnar marki í dag en Brasilíumaðurinn skoraði tvö mörk.
Neymar fagnar marki í dag en Brasilíumaðurinn skoraði tvö mörk. AFP

Spánarmeistarar Barcelona tóku Sporting Gijon í kennslustund í knattspyrnufræðunum í dag.

Börsungar fögnuðu 5:0 sigri á útvelli og ekki var að sjá að fjarvera Lionel Messi hefði nokkur áhrif á leik meistaranna. Neymar skoraði tvö af mörkum Barcelona og þeir Luis Suárez, Rafinha og Arda Turan skoruðu sitt markið hver.

Barcelona tyllti sér á toppinn alla vega um stundarsakir. Liðið hefur 13 stig eins og Real Madrid sem mætir Las Palmas á útvelli í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert