Hafnaði því að verða launahæstur í heimi

Robert Lewandowski.
Robert Lewandowski. AFP

Robert Lewandowski, hinn skæði framherji Bayern München í Þýskalandi, hefur bæst í hóp þeirra sem hafa fengið himinhátt tilboð frá Kína. Þetta fullyrðir umboðsmaður hans.

Lewandowski hefði orðið launahæsti leikmaður heims, með um 34 milljónir punda á ári – upphæð sem samsvarar um 4,7 milljörðum króna. Það jafngildir rúmlega 650 þúsund pundum á viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert